Hér mun Sigurrós setja inn allar þær uppskriftir sem henni þykja hæfar til prentunar og eftirleikni. Njótið vel....
Monday, March 30, 2009
Ennþá ,,skyndibita"vika
Þetta hefur gengið vonum framar að finna eitthvað í skápunum hjá mér, nema á laugardaginn eldaði maðurinn minn fyrir mig og þá var spreðað 3000 kall í kvöldmatinn. Það voru lambafille með ekta Bernaise sósu, bökuðum kartöflum, léttsteiktum sykurbaunum og smjörsteiktum gulrótum. Hann stóð sig alveg rosalega vel. Ég held reyndar að við munum grilla lambafille-ið næst, íbúðin lyktar enn eins og lambafita. Í gærkvöldi var okkur svo boðið í mat, mjög hentugt, og í kvöld verða samlokur og ég býst við að það verði eitthvað mjög beisik en aldrei að vita hvort maður finni eitthvað innst í ísskápnum sem gæti verið lostæti á ósköp venjulega samloku.
No comments:
Post a Comment